-Ég er orðin alvöru námsmaður, læri í 3-8 klst á dag! Eitthvað sem mar var aldrei í FÍV (er einhver þannig í fív? hehe)
-Það besta við það er að ég elska það! Planta mér í Hlöðuna, og læri þangað til mar er rekinn út eða þarf að mæta á æfingu
-Ég elska líka dansinn! Er orðin bara frekar góð í þessu, en fæ stundum alveg killer harðsperrur! Og ef ég mætti ráða væru æfignar 5x í viku!
-Langar í súlu... en hún kostar bara 60 þús kall! Jólagjöf anyone? Þá gæti mar æft sig heima! (erum nebbla byrjaðar að gera dótarí í loftinu og á hvolfi...)
-Og munið að þetta er leikfimi, ekki dirty dancing þó svo að þetta sé semi dirty moves 
-Ég sakna Vestmannaeyja... Ég ætla að koma 3 nóv, og þá er líka eitt stk ball þannig að mar getur aðeins dansað á fös og kúrt á laugardeginum! 
-Það er leiðinlegt að djamma í bænum... en samt var djamm seinustu helgi (afmæli Kollu) og djamm næstu helgi (Októberfest HÍ og vísóferð
Tek það bara létt til að vera fersk daginn eftir til að læra og vinna! 
-Ég er komin með linsur! Fór í mælingu í seinustu viku og sjónin var búin að versna soldið mikið... En núna er ég ekki lengur blind, get keyrt bílinn án þess að segja úps á 100 m fresti hehe
-Það er lítið annað að frétta, margt samt á planinu... Núna er það bara læra til átta í kvöld, svo æfing og svo sofa... dagurinn búinn! Þegar þeir eru svona þá er vikan mjög fljót að líða, ég verð orðin þrítug áður en ég veit af! hehe...
Hérna er svo nýjasta myndin af mér og Berglindi! Tekin í afm. Kollu baby
Annars fáiði að sjá einhverjar myndir bráðum... ég hefbara ekki tíma né "nennu" að vera í minni tölvu... (verð samt að segja að ég er komin með jólakortamyndina í ár af mér og Victori hahahha)

Love love love